Brittney til í að taka boði Cuban og reyna við NBA Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. apríl 2013 22:45 Brittney Griner. Mynd/Nordic Photos/Getty
Það vakti mikla athygli þegar Mark Cuban, eigandi Dallas Mavericks, sagðist vera að hugsa um að velja Brittney Griner í nýliðavali NBA-deildarinnar í sumar en Griner hefur verið óstöðvandi í kvennaháskólaboltanum undanfarin ár. Brittney Griner tróð 18 sinnum á háskólakörfuboltaferli sínum og var með 23,6 stig, 9,0 fráköst og 4,2 varin skot að meðaltali á lokaári sínu með Baylor-háskólanum. Brittney verður örugglega valin fyrst í WNBA-nýliðavalinu 15. apríl næstkomandi en Phoenix Mercury á fyrsta valrétt. "Hvenær eru æfingabúðirnar?," spurði Brittney Griner eftir að blaðamenn báru pælingar Mark Cuban undir hana. "Ég er að einbeita mér að WNBA núna en ef að ég fæ svona tilboð eftir tímabilið, af hverju ætti ég að hafna því. Það er stórt skref jafnvel þótt að það gangi ekki upp," sagði Brittney Griner sem þótti mikils til þess koma að Mark Cuban skrifaði um hana inn á twitter-síðu sína. Griner er því til í að láta reyna á hæfileika sína með bestu karlanna í Mavericks-liðinu en þjálfarar í háskólaboltanum hafa ekki verið eins hrifnir og telja að Mark Cuban sé bara á eftir ódýrri auglýsingu.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Sögulegur dagur er Thelma sópaði til sín gullverðlaunum Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira