Körfubolti

Jón Arnór útaf með fimm villur í öruggum sigri

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. Mynd/Anton
Jón Arnór Stefánsson og félagar í CAI Zaragoza unnu öruggan tólf stiga heimasigur á Lagun Aro, 86-74, í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag.

Jón Arnór var í villuvandræðum og fékk sína fimmtu villu sex mínútum fyrir leikslok. Jón Arnór náði ekki að skora en var með 3 fráköst og 2 stoðsendingar á fjórtán mínútum. Jón tók tvö tveggja stiga skot en klikkaði á þeim báðum.

Króatinn Damjan Rudez var stigahæstur hjá liðinu með 23 stig en Bandaríkjamaðurinn Michael Roll skoraði 16 stig.

Góður annar leikhluti CAI Zaragoza skilaði liðinu átta stiga forskot í hálfleik, 43-34, en sigur liðsins var aldrei í hættu í seinni hálfleiknum.

Þetta var annar sigur CAI Zaragoza í röð en liðið er nú áfram í sjöunda sæti deildarinnar, nú með sextán sigra og tólf töp.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×