Körfubolti

Helena með 21 stig í sigri Englanna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir. Mynd/Heimasíða Good Angels Kosice
Helena Sverrisdóttir átti mjög flottan leik þegar Good Angeles Kosice komst í 2-0 á móti SKBD Rücon Spisská Nová Ves í undanúrslitum úrslitakeppninnar í Slóvakíu í gær. Englana vantar nú aðeins einn sigur í viðbót til að tryggja sér sæti í lokaúrslitunum og næsti leikur er á heimavelli um helgina.

Helena skoraði 21 stig á 29 mínútum í leiknum í gærkvöldi og var einnig með 5 fráköst, 2 stoðsendingar og 6 fiskaðar villur. Helena skoraði tvo þrista í leiknum og nýtti 5 af 9 skotum utan af velli og 9 af 12 vítum.

Það var bara ungverski miðherjinn Tijana Krivacevic sem skoraði meira en Helena í leiknum en Tijana var með 25 stig og 12 fráköst.

Helena hefur þar með skorað 36 stig í fyrstu tveimur leikjum einvígisins og alls 62 stig á aðeins 92 mínútum í fyrstu fjórum leikjum úrslitakeppninnar í ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×