Bílar

Ekkert venjulegt stökk

Finnur Thorlacius skrifar
Besta myndskeið sem sést hefur lengi að mati TopGear.

Þetta myndskeið segja TopGear-menn að sé það besta sem sést hefur lengi. Þar sést 850 hestafla breyttur jeppi, svokallaður Trophy Truck með Chevrolet merki stökkva yfir Nissan GT-R og föngulegan ökumann hans í Mojave eyðimörkinni og það er ekkert venjulegt stökk.

Jeppinn sá arna er engum líkur og ökumaður hans, B.J. Baldwin sér heldur ekkert að því að aka jeppanum á nærri 250 km hraða eftir ósléttum troðningum og er þá meira í loftinu en með jarðsamband. Margir aðrir fimleikar jeppans sjást og einnig huggulegur akstur Nissan GT-R bílsins. Myndskeiðið er ansi vel unnið og greinlega talsvert fyrir því haft. Sjón er sögu ríkari.






×