Handbolti

Karabatic á leið til Barcelona

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Franskir fjölmiðlar segja líklegt að Nikola Karabatic sé á leið til Barcelona á Spáni.

„Jú, ég hef auðvitað verið í sambandi við Barcelona. Viðræðunum er ekki lokið en þetta er mjög spennandi,“ sagði Karabatic við franska fjölmiðla.

Hann leikur nú með Aix en Provence en þangað kom hann frá Montpellier eftir veðmálahneykslið sem skók franska handboltann fyrr á þessari leiktíð.

Karabatic segist einnig eiga í viðræðum við nokkur önnur lið. Spænska blaðið Marca segir þó einnig í dag að Karabatic muni líklega spila í búningi Börsunga á næsta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×