Handbolti

Bræður sameinast á ný

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Árni Þór í leik með Akureyri.
Árni Þór í leik með Akureyri.
Árni Þór Sigtryggsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við EHV Aue í b-deild þýska handboltans. Rúnar Sigtryggsson, bróðir Árna Þórs, er þjálfari liðsins.

Árni Þór hefur spilað vel með TSG Ludwigshafen-Friesenheim á tímabilinu. Örvhenta skyttan hefur skorað 91 mark í 25 leikjum að því er Handball-World greinir frá. Hann gengur í raðir Aue að loknu tímabilinu.

Akureyringar eru í aðalhlutverkum á fleiri vígstöðum í liði Aue því Sveinbjörn Pétursson er markvörður liðsins. Árni Þór hefur áður spilað með TV Bittenfeld og TSV Dormagen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×