Handbolti

Þórey og Rut í úrslit EHF-bikarsins

Þórey Rósa Stefánsdóttir.
Þórey Rósa Stefánsdóttir.
Íslendingaliðið Team Tvis Holstebro komst í dag í úrslit EHF-bikarsins þrátt fyrir tap, 23-17, gegn Midtjylland í dag.

Holstebro vann fyrri leikinn með sjö marka mun og skreið því inn í úrslitaleikinn.

Þórey Rósa Stefánsdóttir skoraði þrjú mörk fyrir Holstebro í dag og Rut Jónsdóttir eitt.

Holstebro mætir væntanlega franska liðinu Metz í úrslitum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×