Körfubolti

Drekarnir slógu út höfrungana

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jakob og Hlynur.
Jakob og Hlynur. Mynd/Valli
Sundsvall Dragons er komið áfram í lokaúrslitin um sænska meistaratitilinn í körfubolta eftir sigur á Norrköping Dolphins í kvöld, 102-72.

Sundsvall vann rimmuna samanlagt, 3-1, og mætir Södertälje í lokaúrslitunum. Rimma liðanna hefst á fimmtudaginn í næstu viku.

Sigur Sundsvall var öruggur eins og tölurnar bera með sér en miklu munaði um að Sundsvall náði að halda Norrköping í aðeins níu stigum í öðrum leikhluta.

Hlynur Bæringsson var nálægt því að ná þrefaldri tvennu fyrir Sundsvall en hann var með ellefu stig, átta fráköst og níu stoðsendingar.

Jakob Örn Sigurðarson átti einnig góðan leik en hann skoraði nítján stig, gaf sex stoðsendingar og tók fjögur fráköst.

Pavel Ermolinskij skoraði tvö stig og tók fjögur fráköst fyrir Norrköping.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×