Körfubolti

Jón Arnór með tíu stig í tapleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Anton
Jón Arnór Stefánsson skoraði tíu stig fyrir lið sitt, CAI Zaragoza, þegar að það tapaði fyrir Bilbao Basket, 100-90, í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Jón Arnór spilaði í 29 mínútur og nýtti aðeins tvö af ellefu skotum sínum utan af velli. Hann gaf fjórar stoðsendingar og tók þrjú fráköst.

Haukur Helgi Pálsson skoraði tvö stig og gaf þrjár stoðsendingar fyrir La Bruixa Manresa sem tapaði fyrir CB Canarias á heimavelli, 93-86.

Zaragoza er í sjötta sæti deildarinnar sem stendur en átta efstu liðin komast í úrslitakeppnina. Manresa er í neðsta sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×