Handbolti

Ljónin hans Guðmundar í undanúrslit

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Rhein-Neckar Löwen tryggði sér í dag sæti í undanúrslitum EHF-bikarkeppninnar í handbolta með sjö marka sigri á Magdeburg, 27-20.

Magdeburg vann fyrri leikinn, 31-28, og Löwen komst því áfram á samanlögðum sigri.

Alexander Petersson og Stefán Rafn Sigurmansson leika með Löwen og Björgvin Páll Gústavsson markvörður er á mála hjá Magdeburg.

Úrslitin í EHF-keppninni ráðast í Nantes í Frakklandi helgina 18.-19. maí næstkomandi.

Nantes, sem Gunnar Steinn Jónsson leikur með, er með öruggt sæti í lokaúrslitunum en það ræðst svo á morgun hvaða tvö lið bætast í hópinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×