Handbolti

Þórey Rósa og félagar á leið í úrslit

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Stefán
Þórey Rósa Stefánsdóttir átti stórleik þegar að lið hennar, Team Tvis Holstebro, fór langt með að tryggja sér sæti í úrslitaleiknum um danska meistaratitilinn í handbolta.

Þórey Rósa skoraði átta mörk þegar að Team Tvis hafði betur gegn Randers, 32-28, í fyrri undanúrslitaleik liðanna í gær. Rut Jónsdóttir skoraði ekki í leiknum liðin mætast í Holstebro á morgun.

Sigurvegari rimmunnar mætir annað hvort Viborg eða Midtjylland í úrslitunum en fyrri leiknum þar lauk með jafntefli, 24-24.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×