Handbolti

Ólafur meistari í Katar

Ólafur lyftir hér bikar í Katar.
Ólafur lyftir hér bikar í Katar.
Ólafur Stefánsson bætti enn einni skrautfjöðrinni í hatt sinn í kvöld er hann varð katarskur meistari með Lekhwiya.

Lið hans gerði jafntefli í leik sínum í kvöld og það stig nægði til þess að Lekhwiya vann sinn fyrsta meistaratitil.

Ólafur skoraði sjö mörk í leik liðsins í dag, að því er fram kemur á mbl.is, en leikurinn gegn Al Qeyadah endaði 31-31.

Handboltaferli Ólafs er líklega lokið núna. Hann tekur við starfi þjálfara hjá karlaliði Vals í sumar og hann hefur gefið það út að hann ætli sér ekki að spila með liðinu.

Hann gæti þó leikið kveðjuleik með íslenska landsliðinu áður en skórnir fara formlega í hilluna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×