Körfubolti

Helena meistari í Slóvakíu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Helena fagnar titlinum ásamt Serbanum Miljana Bojovic.
Helena fagnar titlinum ásamt Serbanum Miljana Bojovic. Mynd/Fésbókarsíða Helenu
Helena Sverrisdóttir varð í kvöld slóvakískur meistari annað árið í röð með liði sínu Good Angels Kosice. Liðið vann öruggan 80-63 sigur á MBK Ruzomberok í fimmta leik liðanna.

Helena og félagar fóru ósigraðar í gegnum deildarkeppnina en lentu í hörkueinvígi í úrslitunum. Það kom nokkuð á óvart en Englarnir hafa haft fádæma yfirburði í Slóvakíu undanfarin áratug. Liðið hefur orðið meistari öll árin.

Helena skoraði eitt stig í leiknum í kvöld en stigahæst var Alexandria Quicley með 24 stig. Miljana Bojovic skoraði 22 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×