Körfubolti

14 stig Jóns Arnórs í lokaumferðinni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar

Jón Arnór Stefánsson skoraði 14 stig fyrir CAI Zaragoza sem lagði UCAM Murcia 108-74 í lokaumferð spænsku deildarkeppninnar í dag.

Jón Arnór tók auk þess þrjú fráköst, átti tvær stoðsendingar og var með fjórða mesta framlagið í liði heimamanna.

Jón og félagar mæta Valencia í átta liða úrslitum. Valencia hafnaði í fjórða sæti deildarinnar en Zaragoza í því fimmta. Valencia er því með heimaleikjaréttinn í einvígi liðanna.

Valencia vann þægilegan sigur á Manresa, liði Hauks Helga Pálssonar, í lokaleik sínum. Haukur Helgi skoraði fimm stig en Manresa var þegar fallið úr deildinni.

Real Madrid hafnaði í efsta sæti deildarinnar, Laboral Kutxa í því öðru og Barcelona í þriðja sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×