Það var allt brjálað í höllinni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. maí 2013 23:21 Jón Arnór og félagar fagna sæti í undanúrslitum. Mynd/Twitter „
Þetta var yndislegt kvöld í alla staði. Þetta var hörkuleikur. Við vorum góðir frá byrjun og sterkari í lokin. Maður hafði einhvern veginn alltaf trú á því að við myndum taka þetta," sagði sigurreifur Jón Arnór Stefánsson í samtali við Vísi í kvöld. Jón Arnór hefur ærna ástæðu til að fagna. Lið hans CAI Zaragoza er komið í undanúrslit í sterkustu körfuknattleiksdeild Evrópu eftir ótrúlegan sigur í þriggja leikja einvígi gegn Valencia í átta liða úrslitunum. Fáir áttu líkast til von á því að Zaragoza gæti staðið í Valencia eftir fyrsta leik liðanna. Þá vann Valencia 38 stiga sigur en Jón Arnór og félagar jöfnuðu metin með sigri í þríframlengdum leik í Zaragoza. Í kvöld vannst sigur í Valencia 83-77. „Það var allt brjálað í höllinni í Valencia í kvöld og ótrúlega gaman að fylgja eftir góðum leik í Zaragoza," segir Jón Arnór sem skoraði 13 stig í leiknum. Jón Arnór hefur farið á kostum í rimmunni gegn Valencia og raunar verið í fínu formi allt tímabilið. Jón Arnór og félagar voru í rútunni á leiðinni heim til Zaragoza þegar blaðamaður heyrði í honum hljóðið. Hann sagði stemmninguna í rútunni góða. „Menn eru hressir, búnir að fá sér tvo bjóra og svona. Ná sér hiður og hlusta á góða tónlist. Svo er það bara beint í bólið," segir Jón Arnór sem spilaði á sínum tíma með Valencia. Hann segir sigurinn enn sætari fyrir vikið enda minningarnar heldur súrar frá þeim tíma. „Það gekk upp og ofan hjá mér hjá Valencia á sínum tíma. En einhverra hluta vegna færði þetta hús okkur lukku í kvöld.," segir Jón Arnór léttur. Jón Arnór og félagar mæta stórliði Real Madrid í fimm leikja einvígi í undanúrslitum. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki fer í úrslitin og er fyrsti leikurinn í rimmunni strax á fimmtudag. Óhætt er að segja að Jón Arnór og liðsfélagar hans hjá CAI Zaragoza ráðist ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. Real Madrid er eitt af allra stærstu félögum álfunnar og verður fróðlegt að sjá hvort Zaragoza takist að standa í Madrídingum.
Körfubolti Tengdar fréttir Jón Arnór og félagar í undanúrslit Jón Arnór Stefánsson skoraði 13 stig fyrir CAI Zaragoza þegar liðið tryggði sér sæti í undanúrslitum spænska körfuboltans með 83-77 útisigri á Valencia. 28. maí 2013 20:47 Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Sögulegur dagur er Thelma sópaði til sín gullverðlaunum Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira
Jón Arnór og félagar í undanúrslit Jón Arnór Stefánsson skoraði 13 stig fyrir CAI Zaragoza þegar liðið tryggði sér sæti í undanúrslitum spænska körfuboltans með 83-77 útisigri á Valencia. 28. maí 2013 20:47