Körfubolti

Ægir frábær í slátrun á San Marínó

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Elvar Már, Martin, Ragnar og Justin, nýliðarnir í íslenska landsliðinu.
Elvar Már, Martin, Ragnar og Justin, nýliðarnir í íslenska landsliðinu. Mynd/KKÍ

Íslenska karlalandsliðið í körfubolta fór létt með kollega sína frá San Marínó 94-53 í fyrsta leik sínum á Smáþjóðaleiknum í Lúxemborg.

Ægir Þór Steinarsson skoraði 27 fyrir íslenska liðið og var sjóðandi heitur fyrir utan þriggja stiga línuna með sex þrista úr níu tilraunum.

Allir tíu leikmenn Íslands komust á blað í leiknum. Nánari tölfræðiupplýsingar úr leiknum má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×