Handbolti

Þórir og félagar komnir í 2-0

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Þórir Ólafsson í leik með Kielce.
Þórir Ólafsson í leik með Kielce. Mynd/Heimasíða Kielce

Kielce, lið Þóris Ólafssonar, er aðeins einum sigri frá pólska meistaratitlinum í handbolta en liðið er komið í 2-0 í úrslitarimmunni gegn Wisla Plock.

Fyrstu tveir leikirnir fóru fram í Kielce um helgina. Heimamenn unnu fyrri leikinnn á laugardaginn, 34-27, og síðari leikinn á sunnudag, 36-25.

Þórir fékk reyndar lítið að spreyta sig í leikjum helgarinnar en Ivan Cupic, sem spilar einnig í hægra horni, var meðal markahæstu manna í báðum leikjum.

Næsti leikur í rimmunni fer fram í Plock á föstudagskvöldið og getur þá Kielce tryggt sér meistaratitilinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×