Handbolti

Sex mörk Þóreyjar en erfið staða Holstebro

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Stefán

Þórey Rósa Stefánsdóttir skoraði sex mörk fyrir Tvis Holstebro í 23-27 tapi gegn Midtjylland í fyrri úrslitaleik liðanna um danska meistaratitilinn.

Staða Þóreyjar, Rutar Jónsdóttur og félaga er því vægast sagt erfið fyrir síðari leikinn á heimavelli Midtjylland um næstu helgi. Liðsmenn Tvis Holstebro voru þó í svipaðri stöðu í úrslitum EHF-bikarsins á dögunum þegar liðið lagði Metz í síðari leiknum eftir tap á heimavelli í þeim fyrri.

Rut Jónsdóttir komst ekki á blað hjá Tvis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×