Körfubolti

Ísland marði Andorra

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Íslensku strákarnir hlusta á Pétur þjálfara í Lúxemborg í kvöld.
Íslensku strákarnir hlusta á Pétur þjálfara í Lúxemborg í kvöld. Mynd/KKÍ

Karlalandslið Íslands í körfubolta vann nauman sigur á Andorra í þriðja leik sínum á Smáþjóðaleikunum í dag.

Leikurinn í Lúxemborg var afar jafn. Andorra leiddi 24-18 eftir fyrsta fjórðunginn en jafnt var í hálfleik 35-35.

Íslensku strákarnir sigu fram úr í lokin og unnu fimm stiga sigur 72-67. Þeir hafa unnið tvo leiki af þremur en Lúxemborg tók okkar menn í kennslustund í gær.

Ægir Þór Steinarsson fór fyrir íslenska liðinu með 17 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×