Handbolti

Róbert markahæstur í sigri á Tremblay

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Róbert Gunnarsson fagnar marki með PSG.
Róbert Gunnarsson fagnar marki með PSG. Mynd/Heimasíða PSG

Línumaðurinn Róbert Gunnarsson skoraði sex mörk úr sjö skotum fyrir Paris Saint-Germain í 36-34 heimasigri á Tremblay í efstu deild franska handboltans í gærkvöldi.

Heimamenn, sem hafa þegar tryggt sér meistaratitilinn, höfðu yfir 19-17 í hálfleik og unnu góðan sigur. Liðsmenn PSG fengu meistaratitilinn afhentan í leikslok enda lokaleikur tímabilsins. Ásgeir Örn Hallgrímsson lék ekki með Parísarliðinu vegna meiðsla.

Þrátt fyrir að Róbert hafi skorað sex mörk í gær er hann ekki í landsliðshópi Íslands sem mætir Hvíta-Rússlandi og Rúmeníu í tveimur landsleikjum í undankeppni EM 2014. Hann glímir við meiðsli sem hann ætlar að ná sér góðum af.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×