Handbolti

Kiel fékk bikarinn afhentan eftir sigur á Wetzlar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Guðjón Valur í leik með Kiel.
Guðjón Valur í leik með Kiel. Mynd / Getty Images

Kiel vann Wetzlar, 37-31, í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld en liðið fékk afhentan bikarinn sem þýskir meistarar á sínum heimavelli.

Kiel hafði yfirhöndina allan leikinn og var sigur þeirra aldrei í hættu. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði þrjú mörk fyrir Kiel í leiknum en Aron Pálmarsson var ekki með í liðinu þar sem hann gekkst undir aðgerð á hné í gær.

Fannar Þór Friðgeirsson, leikmaður Wetzlar, var frábær fyrir gestina og gerði fimm mörk.

Flott tímabil hjá Kiel sem hampaði bikarmeistaratitlinum í Þýskalandi sem og deildarmeistaratitlinum. Liðið fór alla leik í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×