Handbolti

Aron fór í aðgerð á hné

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Facebook-síða Arons

Aron Pálmarsson spilar ekki meira á tímabilinu þar sem hann gekkst undir aðgerð á vinstra hné í Kiel í gær.

Aron missir af síðustu tveimur leikjum Kiel í þýsku úrvalsdeildinni og lokaleikjum Íslands í undankeppni EM 2014.

„Aðgerðin gekk vel,“ skrifaði Aron á Facebook-síðuna sína í gær. „10-12 vikur frá, fimm dagar á hækjum og tvær vikur að gera ekki neitt,“ skrifaði hann enn fremur.

Aron hefur verið þjáður í hnénu síðustu vikurnar en hann spilaði engu að síður með Kiel þegar úrslitahelgin í Meistaradeild Evrópu fór fram um síðustu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×