Handbolti

Gríðarlega mikilvægur sigur Grosswallstadt

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sverre er hér lengst til vinstri.
Sverre er hér lengst til vinstri. Nordic Photos / Getty Images

Grosswallstadt er nú aðeins einu stigi frá öruggu sæti eftir afar mikilvægan sigur á Lübbecke, 33-28, í þýsku úrvalsdeildinni í dag.

Sverre Andreas Jakobsson spilaði að venju í vörn liðsins en Rúnar Kárason er frá vegna meiðsla.

Grosswallstadt þarf reyndar að vinna sigur á meisturum Kiel í lokaumferðinni og treysta á hagstæð úrslit í öðrum leikjum. Liðið er einu stigi á eftir Gummersbach og tveimur á eftir Minden.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×