Körfubolti

Mikilvægur hlekkur yfirgefur Jón Arnór og félaga

Stefán Árni Pálsson skrifar
Pablo Aguilar í leik með CAI Zaragoza
Pablo Aguilar í leik með CAI Zaragoza Mynd / Facebook-síða Aguilar

Körfuknattleiksmaðurinn Pablo Aguilar, liðsfélagi Jóns Arnórs Stefánssonar hjá CAI Zaragoza, er genginn til liðs við Valencia.

Aguilar hefur verið í stóru hlutverki hjá CAI Zaragoza undanfarin þrjú ár. Hann hóf ferilinn hjá Real Madrid en þaðan lá leiðin til Granada. Framherjinn lék flestar mínútur í liði Zaragoza í undanúrslitaeinvíginu gegn Real Madrid.

Valencia greiðir 140.000 evrur fyrir leikmanninn en Aguilar samdi til þriggja ára við félagið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×