Handbolti

Finnur Ingi inn fyrir Arnór Þór

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Arnór Þór var á dögunum valinn besti leikmaður tímabilsins hjá Bergischer.
Arnór Þór var á dögunum valinn besti leikmaður tímabilsins hjá Bergischer. Mynd/Instagram

Arnór Þór Gunnarsson, landsliðsmaður Íslands í handbolta, getur ekki leikið með landsliðinu gegn Hvíta-Rússlandi í undankeppni EM á morgun.

Valsmaðurinn Finnur Ingi Stefánsson hefur verið kallaður inn í hópinn í stað Arnórs Þórs. Arnór hefur verið sendur til Íslands en vonast er eftir því að hann verði klár í slaginn þegar Ísland tekur á móti Rúmeníu í síðasta leiknum í riðlinum á sunnudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×