Handbolti

Andersson dregur sig úr landsliðshópi Svía

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kim Anderson í leik með Svíum.
Kim Anderson í leik með Svíum. Mynd / Getty Images

Handknattleiksmaðurinn Kim Andersson hefur nú dregið sig úr landsliðshópi Svía vegna meiðsla á öxl.

Anderson hafði áður hætt endanlega með landsliðinu en tók þá ákvörðun að snúa til baka í apríl. Læknar sænska landsliðsins töldu að leikmaðurinn væri ekki klár í slaginn fyrir leikina gegn Hollandi og Úkraínu.

Svíar þurfa eitt stig úr leikjunum tveimur til að komast á Evrópumótið í Danmörku á næsta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×