Handbolti

Róbert Aron gæti verið á leiðinni til Hannover-Burgdorf

Stefán Árni Pálsson skrifar
Róbert Aron í leik með Fram.
Róbert Aron í leik með Fram.

Handknattleiksmaðurinn Róbert Aron Hostert, Fram, hefur undanfarna daga verið við æfingar hjá þýska liðinu Hannover-Burgdorf en frá þessu er greint á vefsíðunni www.mbl.is.

Róbert Aron þótti standa sig virkilega vel og líklegt að honum verði boðin samningur hjá félaginu en Hannover-Burgdorf er í efstu deild í Þýskalandi.

Leikmaðurinn varð á dögunum Íslandsmeistari með Fram og hefur verið vaxandi undanfarinn ár.

„Mér leist hrikalega vel á þetta. Hannover-Burgdorf er hörkulið sem sést best á því að það endaði í sjötta sæti í þýsku deildinni. Mér gekk mjög vel á æfingunum og ég tel góðar líkur á að mér verði boðinn samningur enda voru þjálfarar liðsins mjög ánægðir með mig,“ sagði leikmaðurinn í samtali við Morgunblaðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×