Handbolti

Hansen í fríi á Íslandi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mikkel Hansen í leik með danska landsliðinu.
Mikkel Hansen í leik með danska landsliðinu. Nordic Photos / Getty Images
Handboltakempurnar Mikkel Hansen og Marko Kopljar eru staddir hér á landi í fríi og voru úti á lífinu i gær með góðvinum sínum úr íslenska landsliðinu.

Þeir eru á mála hjá franska liðinu PSG og samherjar þeirra Ásgeirs Arnar Hallgrímssonar og Róberts Gunnarssonar.

Þeir voru í fylgd þeirra Guðjóns Vals Sigurðssonar og Snorra Steins Guðjónssonar, en þeir voru samherjar Hansen hjá AG á sínum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×