Bílar

Hvernig kveikja Malasíubúar sér í sígarettu?

Hvað skal til bragðs taka þegar löngunin í sígarettu er öðru yfirsterkari en kveikjarinn virkar ekki. Hér sést hvar frumlegur Malasíubúi er vandi á höndum þar sem hann langar ósegjanlega í sígarettu en kveikjari hans virkar ekki, en gefur samt neista.

Hann bregður á það ráð að opna bensílok bíls síns, rekur kveikjarann ofaní og gefur með honum neista. Ekki vantar bensíngufuna efst í bensínleiðsluna sem leiðir ofan í tankinn og það kviknar í gufunum og hann getur kveikt sér í rettunni.

Langur vegur er í frá að þetta sé ráðlögð aðferð og fólki beint frá þessari aðferð, en líklega er bara tímaspursmál hvenær eldurinn læsir sig neðar í tankinn og allt springur í loft upp.






×