Handbolti

Jónatan tekur við Kristiansund

Jónatan Magnússon.
Jónatan Magnússon.
Eins og fram kom á Vísi fyrr í dag þá er Gunnar Magnússon hættur að þjálfa norska liðið Kristiansund og tekinn við liði ÍBV. Hann mun þjálfa það með Arnari Péturssyni.

Það verður áfram Íslendingur við stjórnvölinn hjá Kristiansund því félagið réð Akureyringinn Jónatan Magnússon í hans stað. Þetta er fyrsta þjálfarastarf Jónatans með karlalið.

Jónatan fór út til liðsins á sama tíma og Gunnar tók við liðinu. Þar hefur hann verið undir handleiðslu Gunnars.

"Jónatan er klár í að taka við liðinu og mér líst vel á það undir hans stjórn. Hann á eftir að standa sig vel með liðið," sagði Gunnar við Vísi í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×