Handbolti

Atli Ævar og Anton flottir í sigri á meisturunum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Atli Ævar Ingólfsson.
Atli Ævar Ingólfsson. Mynd/Stefán
Atli Ævar Ingólfsson og Anton Rúnarsson átti báðir flottan leik þegar Nordsjælland vann 32-31 sigur á meisturum Aalborg Håndbold í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Íslendingarnir voru saman með ellefu mörk og voru tveir markahæstu leikmenn Nordsjælland-liðsins í leiknum.

Nordsjælland átti frábæran fyrri hálfleik sem liðið vann 19-14. Atli Ævar var markahæstur með sex mörk en Anton skoraði fimm mörk. Mads Mensah Larsen skoraði 11 mörk fyrir Aalborg Håndbold en það dugði ekki til.

Nordsjælland tapaði fyrstu tveimur leikjum tímabilsins en hefur nú unnið tvo dramatíska eins marks sigra í röð á aðeins fjórum dögum. Liðið er komið upp í 5. sæti deildarinnar eftir þennan sigur. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×