Spánverjar í undanúrslitin eftir stórsigur á Serbum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. september 2013 17:14 Spánverjar voru í stuði í kvöld. Mynd/AFP
Spánn tryggði sér sæti í undanúrslitum á áttunda Evrópumótinu í röð í kvöld þegar Spánverjar unnu 30 stiga sigur á Serbum, 90-60, í átta liða úrslitum EM karla í körfubolta í Slóveníu. Spánverjar hafa unnið Evrópumeistaratitilinn undanfarin tvö mót og farið í úrslitaleikinn á þremur Evrópumótum í röð. Liðið hefur misstigið sig á þessu móti en er til alls líklegt ef marka má þessi úrslit í kvöld. Sergio Rodriguez var stigahæstur í spænska liðinu með 22 stig en Rudy Fernandez skoraði 19 stig. Marc Gasol þurfti ekki að skila miklu í þessum leik en var með 7 stig, 5 fráköst og 6 stoðsendingar á 22 mínútum. Ricky Rubio bætti við 5 stigum, 6 fráköstum og 6 stoðsendingum. Rasko Katic og Danilo Andjusic voru stigahæstir hjá Serbum með 11 stig hvor en Nenad Krstic var bara með 4 stig. Spánverjar byrjuðu leikinn af miklum krafti og voru komnir í 10-2 eftir aðeins fjórar mínútur þar sem allir leikmenn liðsins voru búnir að eiga þátt í körfu. Spánn var síðan 16 stigum yfir eftir fyrsta leikhlutann, 21-5, þar sem Rudy Fernandez var þegar búinn að skora 13 stig. Spánverjar litu ekki til baka eftir þetta og voru sem dæmi komnir 25 stigum yfir í hálfleik, 48-23. Sigur spænska liðsins var því afar öruggur og aldrei í hættu. Spánverjar mæta annaðhvort Slóveníu eða Frakklandi í undanúrslitunum á föstudaginn en þau tvö mætast seinna í kvöld.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Sögulegur dagur er Thelma sópaði til sín gullverðlaunum Sport Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira