Handbolti

Nielsen ætlar að gera AGK aftur að stórveldi

Jesper Nielsen.
Jesper Nielsen.
Þó svo hrunið hafi farið illa með skartgripakónginn danska, Jesper Nielsen, og að lið hans, AGK, hafi farið á hausinn er hann ekki af baki dottinn.

AGK fór á hausinn fyrir rúmu ári síðan. Leiktíðina á undan komst liðið í undanúrslit Meistaradeildarinnar og var ekki fjarri því að komast í úrslit. Fjölmargir Íslendingar tóku þátt í þessu ævintýri Nielsen sem vakti mikla athygli í handboltaheiminum.

Nielsen er ekki sáttur við þessi endalok og þá meðferð sem hann hefur fengið.

"Þegar þessum árásum á Nielsen-fjölskylduna linnir þá lofa ég ykkur því að AGK muni koma til baka, sterkari en aldrei fyrr. Ég mun gera liðið aftur að einu því besta í Evrópu," skrifaði Nielsen á Facebook-síðu sína.

Verður áhugavert að sjá hvort honum takist að standa við stóru orðin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×