Handbolti

Róbert skoraði í sigurleik | Tap hjá Gunnari Steini og félögum

Róbert Gunnarsson.
Róbert Gunnarsson.
Íslendingaliðið Paris Handball vann flottan útisigur, 23-26, á Ivry í frönsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Róbert Gunnarsson skoraði eitt mark fyrir Paris í kvöld en Ásgeir Örn Hallgrímsson var ekki með. Mikkel Hansen og Marko Kopljar markahæstir í liði Paris með fimm mörk.

Gunnar Steinn Jónsson og félagar í Nantes máttu sætta sig við tap, 19-22, á heimavelli gegn Dunkerque. Gunnar Steinn skoraði eitt mark í leiknum.

Paris er á toppi deildinnar en Nantes er í fimmta sæti. Fjórtán lið eru í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×