Handbolti

Öruggt hjá lærisveinum Geirs

Geir Sveinsson.
Geir Sveinsson.
Strákarnir hans Geirs Sveinssonar í austurríska liðinu Bregenz eru á toppnum eftir enn einn sigurinn í kvöld.

Liðið lagði þá Union Juri Leoben, 36-29, eftir að hafa leitt með átta mörkum í hálfleik, 21-13.

Bregenz er búið að vinna sex af átta fyrstu leikjum sínum í deildinni og er á toppnum með Raiffeisen Fivers WAT Margareten.

Geir er á sínu fyrsta ári með liðið sem Dagur Sigurðsson þjálfaði á sínum tíma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×