Handbolti

Enn eitt tapið hjá Ágústi og hans liði

Ágúst Þór Jóhannsson.
Ágúst Þór Jóhannsson. mynd/stefán
Það gengur hvorki né rekur hjá Ágústi Þór Jóhannssyni og stelpunum hans í SönderjyskE. Liðið tapaði í kvöld sínum sjötta leik í röð. Að þessu sinni á heimavelli gegn HC Odense, 24-26.

Aðeins eru búnar sex umferðir af deildinni og SönderjyskE er því á botninum án stiga. Erfið byrjun hjá Ágústi svo ekki sé fastar að orði kveðið.

Rut Jónsdóttir lék ekki með Team Tvis Holstebro sem tapaði á heimavelli, 30-37, gegn Viborg. Holstebro í fjórða sæti dönsku úrvalsdeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×