Handbolti

Þórir heitur í toppslag

Þórir í leik með Kielce.
Þórir í leik með Kielce.
Þórir Ólafsson og félagar í þýska liðinu Kielce gerðu sér lítið fyrir og slátruðu Pogon Szczecin í toppslag pólsku úrvalsdeildarinnar í kvöld.

Lokatölur 41-27 en staðan í hálfleik var 24-19 fyrir Kielce. Gestirnir áttu ekkert í ofurlið Póllands í dag.

Kielce er með fullt hús stiga á toppi deildarinnar en andstæðingur dagsins er í öðru sæti.

Þórir lék mjög vel fyrir Kielce í dag. Skoraði fjögur mörk í fyrri hálfleik og var þá markahæstur í liðinu. Ekki liggur enn fyrir hvað hann skoraði mikið í þeim seinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×