Handbolti

Þorgerður sterk í endurkomuleiknum

Þorgerður Anna í leik gegn Fram.
Þorgerður Anna í leik gegn Fram.
Landsliðskonan Þorgerður Anna Atladóttir snéri aftur á handboltavöllinn í kvöld er lið hennar, Flint Tönsberg, lék gegn Bækkelagt í bikarnum.

Þorgerður Anna skoraði fjögur mörk í 33-24 sigri síns liðs. Brynja Magnúsdóttir skoraði eitt mark fyrir liðið. Þorgerður Anna hefur ekkert getað spilað fyrir liðið í vetur vegna meiðsla á öxl.

Fleiri Íslendingar komust áfram í norska bikarnum en lið Hildigunnar Einarsdóttur, Tertnes, vann fáranlegan yfirburðasigur á Vålerenga, 54-16. Hildigunnur skoraði þrjú mrök í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×