Handbolti

Hildur og félagar með 30 marka sigur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hildur (lengst til vinstri)
Hildur (lengst til vinstri) MYND/HEIMASÍÐA KOLBENZ/WEIBERN
Handknattleikskonan Hildur Þorgeirsdóttir og félagar hennar í Koblenz/Weibern fóru auðveldlega áfram í þýska bikarnum en liðið valtaði hressilega yfir  SG Bruchköbel, 44-14, á útivelli.

Staðan var 24-8 í hálfleik en SG Bruchköbel leikur í neðrideildum Þýskalands og Koblenz/Weibern í úrvalsdeildinni.

Hildur gerði þrjú mörk fyrir gestina en þær mæta Göppingen í 16-liða úrslitum keppninnar í nóvember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×