Handbolti

Góður sigur hjá Arnóri og félögum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Heimasíða St. Raphaël
Arnór Atlason og félagar í St Raphaël unnu tveggja marka útsigur 25-23 á Dunkerque í efstu deild franska handboltans í kvöld.

Arnór og félagar höfðu frumkvæðið frá upphafi og leiddu í hálfleik 14-8. Þegar fimm mínútur lifðu leiks var staðan 24-20. Heimamenn skoruðu þrjú mörk gegn einu í lokin en það dugði ekki til.

Með sigrinum kemst Saint Raphaël upp að hlið Dunkerque og Montpellier með sex stig í toppsætið. Montpellier á leik inni á morgun.

Ekki er vitað hvernig Arnór stóð sig í leiknum því tölfræðiupplýsingar úr honum liggja ekki fyrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×