Handbolti

Ólafur skoraði fimm í jafntefli hjá Flensburg

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ólafur Gústafsson
Ólafur Gústafsson nordicphotos / getty
Ólafur Gústafsson og félagar í Flensburg gerðu jafntefli, 32-32, við Naturhouse La Rioja í Meistaradeild Evrópu í kvöld en liðin leika í D-riðli.

Flensburg var 19-13 yfir í hálfleik og staðan frábær fyrir gestina en Spáverjarnir komu sterkir til baka í þeim síðari og náðu að tryggja sér stigið.

Steffen Weinhold skoraði átta mörk fyrir Flensburg en Ólafur átti frábæran leik og skoraði fimm mörk fyrir þýska liðið Flensburg.

Anders Eggert Jensen gerði einnig fimm mörk fyrir Flensburg í leiknum.

Flensburg er í öðru sæti riðilsins með sjö stig en Hamburg í því efsta með átta stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×