Handbolti

Lærisveinar Geirs Sveinssonar í Bregenz úr leik í EHF-bikarnum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Geir Sveinsson
Geir Sveinsson mynd / fésbókarsíða Bregenz
Maribor vann öruggan sigur á Branik Bregenz, 37-24, í annarri umferð EHF-bikarsins í handknattleik og eru lærisveinar Geirs Sveinssonar því úr leik í keppninni.

Leikurinn fór fram í Slóveníu. Staðan var 17-11 í hálfleik og réðu gestirnir ekkert við leikmenn Maribor í þeim síðari.

Geir Sveinsson þjálfar austurríska liðið en þeir eru úr leik í keppninni í ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×