Handbolti

Magnaður sigur hjá Þóri og félögum í Kielce gegn Kiel

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þórir í leik með Kielce
Þórir í leik með Kielce mynd / heimasíða Kielce
Þórir Ólafsson og félagar í Kielce unnu magnaðan sigur á Kiel, 34-29, í Meistaradeild Evrópu í dag en liðin leika bæði í B-riðlinum.

Pólska liðið hafði yfirhöndina allan leikinn en Þórir skoraði ekki mark í leiknum.

Guðjon Valur Sigurðsson skoraði fjögur mörk í liði Kiel í dag en Aron Pálmarsson var ekki með vegna meiðsla sem hann hefur ekki enn náð sér að fullu af.

Alfreð Gíslason er þjálfari Kiel.

Kielce er í efsta sæti riðilsins með átt stig og fullt hús stiga. Kiel er í öðru sæti með sex stig en þetta var fyrsti leikurinn sem þýska liðið tapar í Meistaradeildinni á þessu tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×