Handbolti

Snorri Steinn markahæstur í jafntefli GOG

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson.
Snorri Steinn Guðjónsson. Mynd/Vilhelm
Snorri Steinn Guðjónsson og félagar í GOG Håndbold gerðu í kvöld 27-27 jafntefli á móti Team Tvis Holstebro á útivelli í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta en GOG hafði einmitt betur í bikarleik liðanna fyrr í vikunni.

Snorri Steinn var markahæstur hjá GOG Håndbold en hann skorað fimm mörk eins og Minik Dahl Høegh. Snorri Steinn átti mjög góðan leik í bikarsigrinum á þriðjudagskvöldið.

GOG var með eins marks forskot í hálfleik, 13-12, en seinni hálfleikurinn var síðan æsispennandi.

Liðin eru bæði með tólf stig í 4. og 5. sæti deildarinnar en GOG Håndbold er ofar á betri markatölu. Snorri Steinn og félagar hafa unnið 5 af 9 fyrstu leikjunum sínum og aðeins tapað tvisvar sinnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×