Körfubolti

Liðið mitt: Sverrir Bergmann og Justin Shouse í einn á einn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stjörnumenn eru viðfangsefni vikunnar í þættinum "Liðið mitt" á Stöð 2 Sport en í þættinum í vetur verða öll lið Dominos-deildar karla í körfubolta heimsótt. Þriðji þáttur seríunnar verður sýndur í kvöld.

Það er Sverrir Bergmann sem sér um þáttinn og er nú að heimsækja sitt þriðja lið. Sverrir hafði áður litið inn á KR og Keflavík en nú er komið að Stjörnumönnum.

Sjá má stiklu úr þættinum hér fyrir ofan en þar reynir Sverrir sig í "einn á einn" á móti Justin Shouse, besta leikmanni úrvalsdeildar karla undanfarin tvö tímabil.  

Þátturinn er frumsýndur á Stöð 2 Sport klukkan 19:30 í kvöld en hann er síðan sýndur aftur næstu daga á eftirfarandi tímum.

Föstudagur 25. október klukkan 22:05

Laugardagur 26. október klukkan 17:55

Sunnudagur 27. október klukkan 16:05

Þriðjudagur 29. október klukkan 17:05 og 23:25

Fimmtudagur 31. október klukkan 23:05




Fleiri fréttir

Sjá meira


×