Handbolti

Silfurdrengur með nýja heimasíðu

Fjölmargar skemmtilegar myndir má finna af Björgvini Páli á nýrri heimasíðu.
Fjölmargar skemmtilegar myndir má finna af Björgvini Páli á nýrri heimasíðu. Mynd/Heimasíða Björgvins
Landsliðsmarkvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson hefur opnað nýja heimasíðu til að leyfa fólki að fylgjast betur með gengi sínu.

Björgvin, sem ver mark Bergischer í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta, segist vilja ná betur til yngri iðkenda, gera styrktaraðila meira áberandi og láta gott af sér leiða.

Björgvin ætlar að vera duglegur að blogga, birta uppskriftir, fara yfir æfingaviku sína og spyrja leikmenn úr liði andstæðinganna spjörunum úr.

Þá er fólk hvatt til að setja sig í samband við Björgvin með tillögur að góðu málefni sem mætti leggja lið.

Heimasíðuna má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×