Handbolti

Gunnar Steinn áfram í EHF-bikarnum

Sigmar Sigfússon skrifar
Gunnar Steinn Jónsson.
Gunnar Steinn Jónsson. MYND/HEIMASÍÐA HBC NANTES
Gunnar Steinn Jónsson skoraði þrjú mörk fyrir Nantes er þeir unnu þægilegan fjögurra marka sigur 28-24 gegn serbneska liðinu Parizan í EHF- bikarnum í handknattleik.

Nantes er komið áfram í 3. umferð EHF-bikarsins með sigrinum en liðið vann fyrri leikinn 22-15. Nantes vann því samtals með 11 marka mun 50-39 og fer örugglega áfram.

Gunnar Steinn hefur verið að spila vel með Nantes en hann kom þangað frá sænska félaginu Drott Halmstad árið 2012.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×