Handbolti

Refirnir hans Dags með sigur

Dagur Sigurðsson, þjálfari Füchse Berlin. NORDIC PHOTOS / GETTY IMAGES
Dagur Sigurðsson, þjálfari Füchse Berlin. NORDIC PHOTOS / GETTY IMAGES
Lærisveinar Dags Sigurðssonar í Füche Berlin unnu þægilegan sjö marka sigur á Lemgo, 33-26, í þýsku 1. Deildinni í handbolta í dag.

Refirnir frá Berlín náði forystu snemma í leiknum og áttu ekki í neinum vandræðum með Lemgo. Dagur og félagar fóru til búningsklefa í hálfleik með sex marka forystu, 17-11.

Füchse Berlin hélt forystunni allan seinni hálfleikinn og Lemgo náði ekki að koma sér inn í leikinn.

Hinn sænski, Fredrik Petersen, var markahæstur fyrir Refina með átta mörk. Sigurinn var kærkomin fyrir Dag þar sem liðið komst upp fyrir Rhein-Neckar Löwen og Flensburg í 2. sæti deildarinnar. Füchse Berlin er með 16 stig eftir 10 leiki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×