Handbolti

Mikkel Hansen tryggði Dönum sigur á Króatíu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mikkel Hansen.
Mikkel Hansen. Mynd/NordicPhotos/Getty
Danmörk vann eins marks sigur á Króatíu, 29-28, á Bring Cup æfingamótinu í handbolta karla í dag en mótið fer fram í Noregi um helgina. Danir hafa unnið tvo fyrstu leiki sína á mótinu en liðin eru eins og Ísland farin að undirbúa sig fyrir EM í Danmörku í byrjun næsta árs.

Danska liðið virtist vera að tapa leiknum þegar Króatar voru 27-24 yfir á lokakaflanum en þá skoraði Mads Menah Larsen þrjú mörk í röð og jafnaði í 27-27. Mikkel Hansen skoraði síðan sigurmark Dana í lokin.

Danir unnu 33-29 sigur á Frökkum í fyrsta leik mótsins í gær en Frakkar og Norðmenn spila seinna í kvöld. Mikkel Hansen var þá kosinn besti maður leiksins.

Mikkel Hansen var markahæstur í danska liðinu með sex mörk en Jesper Nöddesbo skoraði fimm mörk og var kosin besti maður vallarins. Hans Lindberg og Mads Menah Larsen skoruðu báðir fjögur mörk. Domagoj Duvnjak og Ivan Cupic voru markahæstir hjá Króötum með fimm mörk hvor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×