Körfubolti

Fyrsti tapleikurinn í beinni útsendingu?

Keflavík og KR mætast í stórleik 7. umferðar Domino's-deildar karla í körfubolta á mánudagskvöldið.

Hvorugt liðanna hefur tapað í fyrstu fimm umferðum deildarinnar og deila toppsætinu með fullt hús stiga. Liðin mæta Skallagrími og Njarðvík í 6. umferðinni og því vel mögulegt að liðin tvö verði enn taplaus á mánudaginn.

Leikur Keflavíkur og KR verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport klukkan 19.15 á mánudagskvöldið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×